Grisará

Grísará

Fréttir

Hvolparnir stækka og lífið heldur áfram

Það er nú ósköp tómlegt hérna heima eftir að Röskva mín dó. Ég er búin að heygja hana hér út í garði, þar hefur hún góða yfirsýn og getur vakað yfir okkur.

Hvolparnir stækka og dafna og eru nú allir komnir í stóru bakdyraforstofuna við hliðina á eldhúsinu. Þar eru þeir miðsvæðis og alltaf með okkur hinum. Eyja og Urður sinna þeim til skiptis, en Eyja er nú samt heldur latari við það en Urður, finnst greinilega alveg nóg að það sé bara ein að standa í þessu. En, þeir borða allir eins og botnlausar hítir og leika svo þangað til þeir geta ekki staðið lengur og lognast þá út af.

Karfan er orðin dálítið mikið full þegar allir vilja í hana, en hún virðist einhverra hluta vegna, vera mikið vinsælli en gotkassin sem ég setti þarna inn með þeim. Hérna er hún Syrpa mín að velta því fyrir sér hvernig í dauðanum hún eigi nú að komast þarna fyrir líka, á erfitt með að sætta sig við að allt sé nú upptekið..

Ég á nú álíka erfitt með að sætta mig við að hvolparnir fari meira og minna út í lönd, þarf endilega að drífa mig í að láta setja auglýsingu á DÍF síðuna, svo að þeir fari nú ekki allir í útlöndin.

Ég var að reyna að uppfæra með myndum af hvolpunum áðan, myndirnar eru nú afskaplega mismunandi. Alveg magnað hvað svona hvolpar geta bara alls ekki verið kyrrir.... Alltaf komnir eitthvað út úr rammanum þegar að smellt er af, þannig að ég brá á það ráð að halda hreinlega í þá, en það er nú brugðist á ýmsan hátt við svoleiðis nauðung, yfirleitt reynt að bakka, skottið sett niður og allskyns kollhúfur lagðar. Sá eini sem virðist kunna þetta er hann Leppur, það náðist bara ágæt mynd af honum.



Deildarval

Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.11 2007 - Stefna ehf

Innskráning