Grisará

Grísará

Fréttir

Gestur í skúrinn

Það var afskaplega kósí í skúrnum í dag, Árni Hrólfur og Gummi komu og voru að smíða hvor á sínum borðenda.

Þá sáum við hvar kominn var gestur í skúrinn, sat uppi á hillu og fylgdist með okkur að smíða. Gesturinn, sem var feitur og pattaralegur, var alls ekkert hræddur við okkur, en virtist hafa mikinn áhuga á flugmódelum.

Stuttu seinna fór gesturinn út aftur um gat á glugganum og vioð sáum hann ekki aftur. En við heyrðum í honum við og við og bjuggumst við að hann kæmi inn að inspektera smíðina. Það er gott að vita af því að maður er ekki einn og yfirgefinn útí bílskúr á dimmum vetrarkvöldum. flugmodel474_640



Deildarval

Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.11 2007 - Stefna ehf

Innskráning