Grisará

Grísará

Fréttir

Gígur er kominn heim!!

gigurheima3_640Loksins, loksins!  Hann er kominn heim, Við Hekla erum voða glaðar.  Hekla meira að segja ákvað að lóða í tilefni af þessu öllu saman! 

Gíg finnst Hekla kynþokkafyllst tíka norðan heiða og þótt víðar væri leitað. 

Hann er ógurlega glaður að vera laus úr prísundinni sem skiljanlegt er, og brussast hér út um allt hús þegar hann fær.  Fær nú raunar minna af því núna vegna þess að alls ekki stendur til að hann fái að stunda nein náin kynni með drottningunni á heimilinu, að minnsta kosti ekki neitt á næstunni.  En, standi það einhverntíma til, þá er morgunljóst að hann veit alveg hvað á að gera..



Deildarval

Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.11 2007 - Stefna ehf

Innskráning