Gleðileg jól.
sunnudagur 23.des.07 18:23 - Lestrar 1601

Mynd: Tonny Buijs.
Óskum ættingjum, vinum og hvolpakaupendum nær og fjær Gleðilegra Jóla og farsæls komandi árs.
Heimilisfólk og hundar að Grísará 1, Eyjafjarðarsveit.
Hér hefur ekki verið mikið skrifað að undanförnu, ýmissa hluta vegna. En, nú er það helst að frétta að ég er loksins að fara út að sækja hana Heklu mína. Ég fer út 3. jan. og kem heim með hana 7. jan. Hún fer í einangrun í Hrísey sem er loksins að opna eftir mikinn drátt. Ég hlakka alveg óstjórnlega mikið til að fá hana hingað heim. Hér er svo mynd af litlu snúllunni minn.
