Myndir úr góða veðrinu í dag
laugardagur 7.feb.09 16:56 - Lestrar 1221
Það er búið að vera alveg yndislegt veður í dag og raunar undanfarna daga, en alveg ógurlega kalt. Það voru -15°C í sólinni á hér á Grísará þegar við tókum nokkrar myndir af Gíg úti í garði. Myndirnar má finna í albúminu hans, Gígur á Grísará.
