Búum til betri hvolpa
föstudagur 8.júl.11 16:43 - Views 1086
Þá er komið að því að reyna að fá úlfhundahvolpa á Grísara. Þegar ljóst var að Hekla var byrjuð að lóða fór Silla suður með Gíg til að hann væri ekki alveg samdauna henni og missti þar með áhugannn. Svo kom hún heim í dag og leiddi þau saman í garðinum:

Þetta virtist nú samt ganga hálf brösuglega hjá kappanum, því honum tókst aldrei að festast almennilega. En það er líklegt að Hekla verði móttækileg í tvo daga í viðbót (kannski lengur), svo hann fær alla vega að prófa aftur á morgun:)
Svo er bara að sjá hvað gerist í byrjun september.