Þeir eru þrír !
fimmtudagur 16.okt.08 15:32 - Views 2071
Það eru komnir þrír hvolpar í heiminn. Tveir þeir fyrstu komu snemma í morgun eftir langa bið, svartir rakkar og sprækir. Þegar komið var fram yfir hádegi og ekkert bólaði á fleirum fór Silla með Eyju til fjármálaráðherra -- uh -- dýralæknis og hún risti á kviðinn og dró þann síðasta út. Það var líka svartur rakki. Hann er stærri en hinir og var búinn að flækja sig í legið og hefði líkast til aldrei komist út af sjálfsdáðum.
Nú er spurning hvort Silla notar tillögu Gauja að nöfnum á þá: Hressir, Bætir og Kætir.